
Í nafni almannahagsmuna krefjumst við undirrituð almennra og réttlátra leiðréttinga á stökkbreyttum lánum heimilanna og afnáms verðtryggingar.
Hafi stjórnvöld ekki orðið við þessari kröfu fyrir 1. janúar 2012 jafngildir undirskrift mín kröfu um þjóðaratkvæðagreiðslu um kröfugerðina.
Verðtryggð lán: Verðbótaþáttur frá og með 1. janúar 2008, takmarkist við efri mörk verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands, eða að hámarki 4% á ári.
Sjá nánar hér um hvernig
Gengistryggð lán: Betri réttur neytenda gildi. Sama reikniaðferð og við verðtryggð lán eða niðurstaða dómstóla standi eftir því hvort kemur betur út fyrir lántaka. Tekinn verði af allur vafi um að afturvirkar íþyngjandi innheimtur sem stríða gegn rétti neytenda séu BANNAÐAR með öllu.
Sjá nánar hér um hvernig